Piparmyntan veður áfram
/Piparmynta er skriðul og fjölgar sér með rótarskotum líkt og skriðsóley. Auðvelt er að fjölga henni með því að stinga hana upp og klippa ræturnar í sundur. Mörgum þykir hyggilegt að rækta piparmyntu í afmörkuðu rými til þess að tryggja að hún vaði ekki um allan garð.